Akurshús í Skagafjörðinn
May 27, 2025

Fyrir nokkrum dögum kláruðu Akursmenn uppsetningu og frágang að utan á glæsilegu húsi sem staðsett er í Hegranesi í Skagafirði. Húsið er klætt að utan með standandi timburklæðningu og láréttri báruálklæðningu.
Samstarfsaðilar Akurs við framkvæmdina voru:
Nordan ísland ehf. Gylfaflöt 3 Reykjavík. Gluggar og útihurðir frá þeim eru úr timbri með álklæðningu að utan.
GSG Þaklagnir Smiðshöfða 19 Reykjavík. Á þaki er PVC þakdúkur sem GSG Þaklagnir sá um að setja niður og ganga frá.
Á næstu vikum mun Akur ljúka við frágang að innan fyrir kaupendur hússins.

July 1, 2026
Það er ekki algengt að fólk vinni alla sína starfsævi hjá sama fyrirtækinu. Það gerði ein samstarfskona okkar í Akri hún Margrét Arnfinnsdóttir, en hún lét af störfum í gær eftir 48 ár og tvo mánuði í starfi fyrir Akur. Magga hóf störf í Akri í byrjun maí árið 1978. Alla tíð vann hún við almenn skrifstofustörf og var launafulltrúi fyrirtækisins. Við í Akri kveðjum góða samstarfskonu sem hefur sýnt samferðafólki sínu í fyrirtækinu hlýju og alúð. Tryggð hennar við fyrirtækið og stjórnendur í gegnum tíðina er okkur mikils virði. Samstarfsfólk hennar í Akri óskar henni alls hins besta í framtíðinni og vonum að hún finni skemmtileg viðfangsefni á komandi árum.

May 18, 2026
Á síðasta ári var gerður samningur milli Trésmiðjunnar Akurs og Sorpurðunar Vesturlands þess efnis að Akur byggji starfsmanna- og þjónustuhús fyrir félagið. Smíði hússins hefur staðið yfir í vetur og var það byggt innandyra í verksmiðju Akurs. Samstarfsaðilar Akurs við byggingu hússins eru; Borgarverk ehf Borgarnesi – flutningur á húsi Færni ehf Akranesi – málning og gólfdúkur Pípó ehf Akranesi – pípulagnir Vogir og Lagnir ehf Akranesi – raf- og tölvulagnir Húsið var flutt 7. maí síðast liðinn í Fíflholt og var sett niður til bráðabirgða þar til það verður sett á undirstöður á næstu dögum.


